Jæja, er ekki kominn tími á smá blogg.
Það er reyndar allt of langt síðan að maður bloggaði síðast og
vonandi verður ekki svona löng bið á það næsta. En alla vega frá
því síðast er mikið búið að gerast.
Byrjum á því að Liverpool tapaði úrslitaleiknum í
Meistaradeildinni í maí á móti AC Milan, var ekki gaman að horfa
upp á það en ætli Liverpool verði ekki að leyfa öðrum liðum að
vinna bikara.
Síðan hefur Hrafndís Bára farið hamförum í fjölmiðlaheiminum. En
á tímabili var ekki sá fréttatími þar sem hún var í viðtalai eða
hún nafngreind í sambandi við Kárahnjúka. En málið tegnist
yfirgangi yfirmanna á Kárahnjúkum gegn undirmönnum sínum. Mér fanst
Hrafndísi standa sig vel í þessu og styð hana heilshugar gegn
þessum mönnum.
Vinnan gegnur sinn vanagang og einnig dómgæslan. Er nú þegar
búinn að fá nokkur stór verkefni í sumar og vonandi verða þau
fleiri það sem eftir lifir sumars.
17. júní er ný liðinn og var mikið um að vera hér í bæ.
Bíladagar laðaði mikið fólk á flottum bílum í bæinn og virtist fólk
skemmta sér frábærlega. Reyndar voru þó nokkuð um pústra í bænum og
nóg að gera hjá lögreglunni. En í Sjallanum var mikið um manninn og
yfir 800 mans voru í Sjallanum bæði föstudags og laugardagskvöld en
fór það mestu leyti vel fram en reyndar var nóg að gera í dyrunum
og hafði maður varla undan að hleypa fólki inn.
En eitt í sambandi við helgina síðust er að mínu ályti var það
heimska af bænum að loka tjaldsvæðinu við Þórunarstræti og láta
alla safnast saman á tjaldsvæðinu að Hömrum. Það voru mestu
mistökin.
Kata Mæja útskrifaðist úr MA þann 17. júní og vill ég óska henni
til hamingju með þann árangur, og Mæja, ég skutla þér aldrei aftur
heim úr veislu hér í bæ.
Einnig ef minnið bregst ekki þá átt þú Klara afmæli í kringum 17
júní, man ekki alveg daginn en samt til hamingju með það.
Nú er komið 19. júní og tíminn þýtur áfram og gerir hann það
allt of hratt. Nú eru 195 dagar eftir af árinu sem þíðir að
188 dagar eru til Jóla. Það er ekki svona langt síðan að við vorum
að fagna nýju ári. Er ekki hægt að hægja á lífinu?
Og að lokum, Hafrún
BJÓRINN ER Í ÍSKÁPNUM OG BÍÐUR.
Lifið heil